Eins og fram hefur komið er þátttökugjaldið fyrir hvert lið kr. 136.000 fyrir allan veturinn. Innifalið í því gjaldi eru öll skráningargjöld, æfingatímar á okkar keppnisstöðum, fræðsla og veitingar og jakkar merktir MLÆ og Líflandi.
Fyrirkomulag greiðslu verður þannig háttað:
- Einn fulltrúi hvers liðs sendir inn kennitölu greiðanda, netfang og nafn liðs á gjaldkera deildarinnar, helgabjhelga@gmail.com eða á Helgu Björgu á Messenger.
- Krafa verður stofnuð í heimabanka og Fákur sendir reikning á uppgefið netfang.
- Greiða þarf gjaldið að fullu fyrir fyrsta mótið þann 12. febrúar.
Comments